Hvað er Teams ?
Teams er einskonar fjöltengi sem tengir saman alla hluti Office 365 svítunar, auk þess að tengjast inn í mörg önnur kerfi eins og Jira Cloud, Trello, Conflucence, YouTube, SurveyMonkey, Google drive og margt fleira sem auðveldar okkur vinnuna.
Teams er ekki eingöngu til að nota við fjarfundi. Í Teams getum við spjallað (Chat), hringt, geymt og deilt skjölum og allt hitt sem þarf í teymisvinnu. Þegar teymi er stofnað verður til spjallþráður og það verður til Sharepoint síða með skjalasafni.
Það er líka hægt að nota Teams fyrir skipulag á hlutum þar sem einn einstaklingur hefur aðgang.
Office 365 umhverfin eru ekki öll eins. Microsoft býður td. uppá menntaumhverfi og fyrirtækjaumhverfi. Þegar ný teymi eru stofnuð þá eru kennsluteymi í boði í menntaumhverfinu en hefðbundin teymi í fyrirtækjaumhverfinu
Námskeið í boði:

Teams grunnur:
Farið í helstu þætti Teams og lausnir skoðaðar
- Fyrstu skrefin
- Teams í vafra, Teams hugbúnaður
- Ókeypis útgáfan af Teams
- Helstu stillingar á Teams
- Sjálfvirk skilaboð / Out of Office
- Stillingar á tilkynningum
- Talhólfið
- Vinstri valstikan og allir valmöguleikarnir
- Hvernig er teymi stofnað
- Unnið í rásum
- Teams og Outlook
- Fundir
- Tenging við skjalageymslur; OneDrive for business og SharePoint
- Spjallþráður er ekki bara spjallþráður
- …

Teams framhald:
- Ýmsar uppsetningar á teymi og valmöguleikar
- Stillingar á rásum
- Tengingar við Planner, OneNote og aðrar lausnir
- Unnið með merkingar / tags
- Samþykktarferli / Approval
- Tengingar við Planner, OneNote og aðrar lausnir
- Skipulag á skráarsöfnum og tenging við SharePoint
- Tenging við aðrar skýjaþjónustur; Dropbox, Google
- Fundarstjórnun og stillingar
- Stórum fundum skipt upp í smærri fundi
- Power automate / sjálfvirkni
- …

Vaktaplan skoðað frá sjónarhóli stjórnanda
- Nýtt vaktaplan stofnað
- Vaktateymi stofnuð
- Vaktir og frí sett á vaktaplan
- Vöktum úthlutað á starfsfólk
Vaktaplanið skoðað frá sjónarhóli starfsmanns
- Yfirsýn yfir vaktir
- Innstimplun
- Vaktir færðar til
- Beiðni um frí

