Hvað er Planner ? Planner er verkmiðatól sem er hluti af Microsoft 365 svítunni og tengist vel inn í Teams hugbúnaðinn. Með Planner fæst góð yfirsýn yfir verkmiða (Task) og stöðu verkefnis auk þess sem öll gögn er aðgengileg öllum í teyminu.

Á námskeiðinu skoðum við:
- Uppsetning á Planner
o Kanban
o Agile - Verkmiðar skoðaðir
- Skjalageymsla verkefnis skoðuð
- Mælaborð skoðað
- Tengingar við Outlook
- Tenging við teymi í Teams
- Yfirsýn verkborða og verkmiða
- …
Í lok námskeiðsins ættu þátttakendur að:
• Geta nýtt sér alla helstu þætti Planner verkmiðastjórnunar
• Geta skipulagt vinnuhópa og verkefni í Planner
• Hafa góðan skilning á tengingu við Teams
• Fundið nýjar leiðir til að leysa núverandi og nýjar áskoranir

