Hvað er ITIL ?

ITIL stendur fyrir Information Technology Infrastructure Library.

ITIL er mjög viðamikið safn (Framework) af svokölluðum „bestu starfsvenjum“ (best practices) í upplýsingatækni og er notað sem leiðarvísir og fagleg leið til að skipuleggja, samræma, skjala og bæta ferla til að veita betri þjónustu hjá upplýsingatæknifyrirtækjum um allan heim.

ITIL er ekki eingöngu ferlar fyrir  UT rekstur. ITIL ferlar styðja við DevOps, IoT, Netöryggi (Cyber security) og aðrar tækninýjungar. 

Með ITIL fáum við fastmótaða ferla þar sem allir vinna eins. Allir nota sömu hugtök yfir sömu hlutina, sem kemur í veg fyrir misskilning, sem aftur kemur í veg fyrir þjónusturof.

Hlutverk og ábyrgð er vel skilgreint innan ITIL. Við bjóðum betri þjónustu til viðskiptavinar þar sem ferlarnir fækka atvikum og verklag er samræmt allstaðar. ITIL skilar auknu rekstraröryggi og bættu þjónustustigi

ITIL er ekki staðall – ITIL eru ferlar.

Ávinningur ITIL er:

  • Meiri samlegð milli UT rekstur og fyrirtækja
  • Aukin þjónusta og viðskiptaánægja
  • Meiri kostnaðarvitund
  • Betri áhættustjórnun og aukin yfirsýn yfir þjónusturof

Með ITIL er: 

  • Tekist á við atvik í rekstri (Incident)
  • Þjónusta er í boði (Request)
  • Breytingar eru vel skipulagðar (Change)
  • Undirliggjandi vandamál eru greind og útrýmt (Problem)
  • Þekking starfsmanna eykst (Knowledge)
  • Betri yfirsýn og stjórnun á áhættuþáttum og þjónustufrávikum (Event)

Leave a comment